XXXBylgja Mjöll Helgadóttir
Við erum að fara til Köbenhavn:) Búnar að kaupa okkur flug og hótel og förum helgina 10.-13.oktober. Tilgangur ferðarinnar er að skoða konditoriið sem ég stefni á að fara læra í, auk þess sem ég ætla að sækja um á fleiri stöðum , skoða íbúðina sem Gunna er búin að finna handa okkur, vera fullar… og kaupa skó á mig, þar sem það virðast ekki vera til neinir skór í allri Álaborg sem falla vel að mínum fæti…Ég er alveg að pirrast yfir því núna að eiga ekki massa monninga , danska krónan stendur í 20,5 íslendkum krónum. Hefði verið næs að glugga nokkrum aurum að bankanum fyrir þeim smáskuldum sem ég skildi eftir mig þegar ég sagði slilið við þennan dýra og fína lífsstíl sem ég lifði á Íslandi
Ég er lasarus…og mér finnst það leiðinlegt. Ég hef aldrei verið veik frá vinnu frá því að ég byrjaði í Penny Lane, og mér finnst asnalegt að vera eitthvað að byrja á því núna....svona rétt áður en ég hætti....Alltaf þegar ég er veik heima þá fynnst mér ég aldrei vera nógu veik til að geta verið heima með góðri samvisku...þarf helst að vera hálf dauð til að réttlæta veikindin. Asnalegt, ég veit. Ég ætla í vinnuna á morgun.
Lítið meira að seigja....
• Ég keypti mér kort í ræktina....aftur
• Man. United voru í bænum, og fullt af öðrum bretum
• Ég og Nína fórum í okkar fyrsta danska partí um helgina
Já læt þetta bara nægja....Venlig hilsen