Sumariđ er komiđ:)Bylgja Mjöll Helgadóttir

Vá það er alveg kominn mánuður frá síðasta bloggi....hrikaleg leti er í manni. Hvað er búið að gerast á þessum mánuði???  Svosem ekkert rosalega mikið þannig. Það er reyndar búið að vera alveg killer veður síðustu vikurnar, brjáluð sól og allt uppí 25+ í hita.....I love it. Ég fór með Lilju og krökkunum á ströndina í gær og það var sko algert æði skal ég seigja ykkur. Sumarið er minn tími, klárlega. Eini gallinn við þetta æðislega veður er það að það er að verða alveg ólíft í vinnunni fyrir hita. Það er ekkert voðalega huggulegt að vinna í steikjandi hita og karla svitafílu, því auðvitað þá svitar fólk mun meira. En þetta fylgir víst bara:) En úr því að ég er farin að tala við vinnuna þá stend ég í smá stríði við einn samstarfsmann minn. Málið er það að gaurinn hann prumpar svo mikið á morgnanna að það er bara að gera útaf við mig. Bæði með og á hljóðs, og maðurinn er dauður að innan. Hann semsagt gerir alveg í því að kreista útúr sér gassprengjurnar til að pirra mig því ég verð alveg brjáluð í hver einasta skipti, og hann hefur mikla ánægju af því. Fynnst það eitthvað fyndið. Ég veit ekki hvað ég á að gera til að láta hann hætta þessu, ég er stundum bara alveg með æluna, í alvöru talað. Kannski er ég bara vona mikil tepra, ég veit það ekki, en fólk reynir nú yfirleitt að halda í sér og losa svona í einrúmi...eða það myndi ég allavega gera ef ég myndi einhverntímann prumpa...Annars er þessi samstarfsmaður minn ágætis skinn, en hefur þennan stóra galla.

Ég var að fatta það að ég er búin að búa hér í Álaborg í 7.mánuði. Mér fynnst ég bara alls ekki búin að vera hér svo lengi, sem þýðir vonandi að það er gaman...

Og þar sem er kominn mánuður síðan síðast þá langar mig að þá hefur ýmislegt gerst:

Mig langar að óska Steinunni og Jóni Gunnari til hamingju með litlu prinsessuna sem þau eignuðust 21. apríl síðastliðinn. Fallegra barn er sko vanfundið, hún er alveg æðisleg...Mig hlakkar sko mikið til að halda á henni þegar ég kem til Íslands:)

Mamma mín átti afmæli 6. mai síðastliðinn

Hún Sigrún mín var að útskrifast í gær frá University of Georgia með b.s. gráðu í sálfræði, og ég er alveg hrikalega stolt af henni...

Og svo ætla ég líka svona fyrirfram að óska henni Böggu minni til hamingju með afmælið, en hún á afmæli 14.mai og verður " 25.ára":)

Jæja, tilkynningaskyldan búin í bili.....Ég er að koma heim eftir aðeins 6 daga, og ég verð að viðurkenna að það er sko komið ágætis fiðrildi í mallan af tilhlökkun...

Ég er búin að kaupa mér miða á Hróaskeldu, ætla að fara með Nínu og Sigga Palla, vin hennar sem við skiptum út fyrir Jóhönnu. Það verður GEÐVEIKT...ég get ekki beðið, enda er alveg geggjaðar hljómsveitir sem verða í ár...Bara svona til dæmis þá verða Band og horses, The cemical brothers, Gnarls Barkley, José González, Kings of leon, Radiohead, Mugison, The streets og svo auðvitað margar fleiri, en þessar hlakkar mig mest til að sjá....´

Læt þetta vera lokaorðin í bili, sjáumst á Íslandi eftir 6. daga......Hlakka til
                                                  Billy:)


Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Klukkan

Undirsíđukubbur

Flokkar

Atburđarteljari