Og ţađ er komiđ ÁR!!!!Bylgja Mjöll Helgadóttir

Ég er búin að búa hér i Álaborg í heilt ár!!!!!! Mörgum fynnst það kannski ekkert merkilegt, en fyrir mér er það mjög stór áfangi. Það er ekkert auðvelt að flytja svona alein til útlanda og þekkja engann....ekki sálu. Mér finnst ég vera mjög heppin, því einhvernveginn hefur allt gengið upp eins og í ævintýri.....með nokkrum erfiðum köflum:)

Mér fannst mjög erfitt að flytja út og seigja skilið við alla. Ég var með stingandi heimþrá fyrstu 3 mánuðina....saknað fjölskyldunnar, vinanna, vinnunnar og fannst alveg hrikalega furðulegt að vera svona mállaus og geta ekki tjáð mig almennilega. Fyrstu mánuðurnir voru erfiðir og ekki bætti úr skák vera sagt upp vinnunni eftir hafa unnið þar í aðeins 1 og hálfan mánuð og á þeim tímapunkti langaði mig bara að pakka saman og fara aftur heim......En það er aldrei neitt svo slæmt að það komi ekki eitthvað gott útúr því og eftir 3 vikna atvinnuleysi fékk ég frábæra vinnu á uppáhalsds kaffihúsinu mínu. Ég á sko Sigga og Lilju mikið að þakka, en þau tóku mig nánast að sér fyrstu mánuðina og eru mikið búin að hjálpa mér .....YNDISLEGT FÓLK og bestu vinir sem hugsast getur, ég á sko eftir að sakna þeirra mikið þegar ég flyt héðan.

Það voru margir hlutir sem ég var hreinlega ekki búin að hugsa til enda þegar ég rauk af stað og flutti út, og ef ég myndi gera þetta aftur þá myndi ég gera hlutina allt öðruvísi...
Það var oft mjög einmannalegt svona fyrst og mér fannst, og fynnst reyndar enn, mjög erfitt að kynnast dönunum...þeir eru frekar lokaðir. En þá þýddi ekkert annað en að reyna að finna sér íslenska vini....þannig að ég fór inná Danmörk.is og sett inn þráð sem stóð “Ný í Álaborg” og stuttu seinna kom comment frá Nínu og Jóhönnu sem voru líka nýfluttar hingað, og þar stóð “ ÁLABORGARI” og msn addressa:)
Og þannig var það komið...svona er þetta nú auðvelt . Við Nína hlæjum alltaf jafn mikið þegar við erum spurðar af því hvernig við kynntumst.......UUUU á Netinu:)

Ég, Nína og Jóhanna vorum mjög duglegar að hittast og gera eitthvað saman. Jóhanna flutti svo heim í mai og þá ákváðum við Nína að flytja saman inn til bróðir hennar...og svo til Köben í janúar.

En allavega til að gera langa sögu stutta þá er komið heilt ÁR og ég er hér enn og bara alls ekkert á leiðinni heim....nema bara í frí :)

Ég er mjög sátt. Þetta ár er sennilegast búið að vera það erfiðasta en jafnframt það skemmtilegasta á öllum þessum 25. árum mínum:) Og mig hlakkar til að byrja á næsta.....


Billy gamla geit:)


Smá öppdeit....Bylgja Mjöll Helgadóttir

Er ég lélagasti bloggari norðan Alpafjalla??? Hugsanlega:) En þannig  er það bara....
Ég hef bara verið svo busy (löt) að ég hef bara ekki mátt vera að því að blogga eitthvað.

Við erum að fara flytja til Köben helgina 28-29. nóvember. Tökum smá road trip á þetta, ætlum að leigja flutningarbíl og keyra með allt draslið okkar yfir....með viðkomu á grensunni til að versla öl og nauðsynjar á vægu verði:)

Við erum búnar að kaupa okkur flugmiða, komum 4.desember kl 22:20 á staðartíma:).....og ætlum að vera í mánaðarfríi, förum aftur út 5.januar. Ég var búin að plana að vera vinna þennan mánuð en sökum kreppu þá er bara engin vinna í boði á Íslandi....allavega ekki sem hefur efni á mér:)  Þannig að 
ég er bara að fara vera í mánaðarfríi sem er bara voða næs. Held að ég hafi bara ekki átt svona lang jólafrí síðan...Aldrei:)  En ég ætla að nýta þennan tíma vel, ég ætla að reyna að hitta sem flesta og eyða góðum tíma með fjöldkyldunni því ég reikna ekki með að koma aftur heim til Íslands fyrr en næstu jól.

Við erum komnar með íbúð sem er í Vanlöse, sem er rétt fyrir utan Köben, ca 6,min með metró...



Humm....ég ætla að skrifa fleira eitthvað seinna:)










XXXBylgja Mjöll Helgadóttir

Við erum að fara til Köbenhavn:) Búnar að kaupa okkur flug og hótel og förum helgina 10.-13.oktober. Tilgangur ferðarinnar er að skoða konditoriið sem ég stefni á að fara læra í, auk þess sem ég ætla að sækja um á fleiri stöðum , skoða íbúðina sem Gunna er búin að finna handa okkur, vera fullar… og kaupa skó á mig, þar sem það virðast ekki vera til neinir skór í allri Álaborg sem falla vel að mínum fæti…

Ég er alveg að pirrast yfir því núna að eiga ekki massa monninga , danska krónan stendur í 20,5 íslendkum krónum. Hefði verið næs að glugga nokkrum aurum að bankanum fyrir þeim smáskuldum sem ég skildi eftir mig þegar ég sagði slilið við þennan dýra og fína lífsstíl sem ég lifði á Íslandi

Ég er lasarus…og mér finnst það leiðinlegt. Ég hef aldrei verið veik frá vinnu frá því að ég byrjaði í Penny Lane, og mér finnst asnalegt að vera eitthvað að byrja á því núna....svona rétt áður en ég hætti....Alltaf þegar ég er veik heima þá fynnst mér ég aldrei vera nógu veik til að geta verið heima með góðri samvisku...þarf helst að vera hálf dauð til að réttlæta veikindin. Asnalegt, ég veit. Ég ætla í vinnuna á morgun.

Lítið meira að seigja....

• Ég keypti mér kort í ræktina....aftur
• Man. United voru í bænum, og fullt af öðrum bretum
• Ég og Nína fórum í okkar fyrsta danska partí um helgina

Já læt þetta bara nægja....Venlig hilsen


Lata skataBylgja Mjöll Helgadóttir

Jæja þá, seint skrifa sumir en skrifa þóHlæjandi Ég ákvað ad taka mér bara sumarfrí frá blogginu í sumar. Ég er annars búin að eiga frábært sumar og gera margt skemmtilegt en það sem stendur alveg langt uppúr er samt Hróaskelda, vá hvað það var rosalega gaman....Við Nina erum búnar að ákveða að þetta verði bara árlegur viðvurður hér eftir. Þar sem ég var í blogg sumarfríi þá tók Nína það að sér að blogga og setja inn myndir um þessa ágætu ferð sem hægt er að nálgast á Nína Álaborgari linknum hér til hliðar.

Það er búið að vera alveg æðislegt veður hérna í sumar og ég náði meira að seigja að wörka pínu tan, þó að það sé að mestu horfið núna...ég náði líka að forðast öll flugna bit í allt sumar og var farin að halda að ég væri bara algerlega ónæm fyrir slíku þarsem flestir á heimilinu voru útbitnir en ekki ég. En þær eru semsagt heldur betur að fatta mig núna helvískar flugudruslurnar....Lærið á mér er búið að vera svo bólgið að það mætti halda að ég hefði verið að sprauta einhverjum Arnold sterum í það, og sökum þess þá hef ég ekki getað gengið almennilega og ekki passað í venjulegar buxur....en þetta er nú að lagast, bólgan að mestu farin úr lærinu og er að færa sig skuggalega mikið yfir á hægri rasskinnina...

Annars er það að frétta af mér að ég er búin að seigja upp vinnunni á Penny Lane og ætla að koma heim í smá stopp í byrjun desember. En palanið er svo að flytja til Köben strax í byrjun janúar á næsta ári. Við Nína erum núna á fullu að leita af íbúð sem er svona cirka miðsvæðis fyrir okkur báðar, sem er pínu vesen þar sem ég er að stefna á að fara á samning sem konditor lærlingur á stað sem er pínu fyrir utan Köben en Nína ætlar í skóla sem er eignilega alveg down town Köben.....en við finnum eitthvað á endanum.

Ég á alveg pínu eftir að sakna Álaborgar, ég er alltaf að fíla þennan stað betur og betur...Þetta er eiginlega eins og stór Hafnarfjörður, svona semí sveitó stórborg. Það er samt alveg kominn nettur spenningur fyrir því að flytja til Köben, enda var það aldrei planið endilega að setjast að í Álaborg, hún átti meira að vera svona pit stopp. En nóg um þetta í bili...
 
Langar svo í lokin að óska systrum mínum til hamingju með afmælisdagana sína en Gunna átti afmæli 27.ágúst síðastliðinn og varð 29.ára gömul kjellingin og Hjördís á afmæli í dag, orðin 18.ára gömul...ég er búin að senda ykkur afmælispakkana, fáið svo bara knúsin þegar ég kem í desember, og alveg fullt af þeimBrosandi Man ekki eftir fleiru í bili, lofa að verða aðeins virkari í blogginu í vetur....
                                                                 Kyss og knús, Billy

Farin og komin...Bylgja Mjöll Helgadóttir

Ég fór til Íslands og átti þar æðislega daga. Fannst þetta samt allt of stuttur tími, hefði alveg verið til í 3 vikur, en maður getur ekki fengið allt....þetta var allavega alveg yndislegt. Ég náði að sjá mömmu mína útskrifast, fara í sumarbústað, fara tvisvar sinnum á djammið og nokkrar heimsóknir, náði reyndar ekki að hitta á alla þá sem ég ætlaði mér að hitta, en það verður bara að bæta úr því þegar ég kem heim um um jólin...
Ég fann ekki til svengd allan tímann sem ég var á Íslandi, enda var hugsað vel um að ég fengi allt sem mig langaði í að borða, heheh enda var ég búin að koma með smá óskalista sem hljómaði til dæmis uppá kjöt og kjötsúpu, plokkfisk, bjúgur og soðna ýsu, svo eitthvað sé nefnt:) Takk fyrir matinn mamma og amma...
Ég fékk pínu sjokk þegar ég kom heim yfir því hvað allt er orðið dýrt eitthvað...bensínlíterinn á 160 kall o.s.frv, maður týmdi bara varla að fá sér rúnt á lölla því það kostaði bara massa pening, heheh nei nei seigi svona, en ég sé sko mun á verðinu síðan í nóvember, mér fynnst allt vera búið að hækka töluvert.
Ferðin heim til Ála var löng....Ég asnaðist til að taka lestina frá Köben í stað þess að fljúga, og með minni heppni þá tók það lestina 7 og hálfan tíma að prumpast til Álaborgar í stað þess að vera ca 4 og hálfan til 5 tíma venjulega, en það var lokuð stórabeltisbrúin einhverra hluta vegna einmitt þegar við áttum leið þar um, og við þurftum að húka í lestinni í rúmlega tvo tíma í sjóðandi hita á meðan. Ef ég hefði bara flogið þá hefði það tekið mig 45 minutur…..en þýðir ekkert að vatna músum efir því, ég er allavega komin heim. Það tók á móti mér spánar veður, 25-30 stiga hiti og brjáluð sól þannig að ég er varla búin að vera heima hjá mér síðan ég kom, því maður tímir ekki að vera inni í svona hita. Núna er reyndar komin rigning sem er eiginlega bara gott því það er allt gras að skrælna...
Ég er að fara flytja. Ég er búin að seigja upp íbúðinni minni og flyt út mánaðarmótin ágúst/september. Þó að ég elski íbúðina mína þá er þetta bara alltof dýr leiga fyrir eina manneskju, sérstaklega þar sem ég fæ engar leigubætur. Nína er flutt inn til Hlyns, bróður síns, en hann býr í raðhúsi með syni sínum, og þar sem það var auka herbergi þá buðu þau mér að flytja inn líka. Ég auðvitað sló til, bæði vegna þess að það er minni leiga og líka vegna þess að það verður bara næs að búa með einhverjum, fá félagsskapinn:) Þetta er reyndar mikið lengra í burtu frá miðbænum og vinnunni, en ef ég fer á skúter þá tekur mig svona 25-30 minutur að fara í vinnuna, sem er ekki svo slæmt.
Og svo styttist í Hróaskeldu...og það er sko farinn að magnast allverulega upp spenningurinn. Það breyttust reyndar ferðaplönin aðeins því Siggi vinur Nínu sem ætlaði með okkur á hátíðina kemst ekki, þannig að við förum bara tvær frá Álaborg, en eigum klárlega eftir að hitta og kynnast fullt af fólki þegar við komum þangað auk þess sem nokkrir vinir okkar eru að fara frá Íslandi. En ef einhverjum langar að slást í för þá er það velkomið:)
En ég ætla að láta þetta vera lokaorðin í bili, kveðja Billy
Svalur

Sumariđ er komiđ:)Bylgja Mjöll Helgadóttir

Vá það er alveg kominn mánuður frá síðasta bloggi....hrikaleg leti er í manni. Hvað er búið að gerast á þessum mánuði???  Svosem ekkert rosalega mikið þannig. Það er reyndar búið að vera alveg killer veður síðustu vikurnar, brjáluð sól og allt uppí 25+ í hita.....I love it. Ég fór með Lilju og krökkunum á ströndina í gær og það var sko algert æði skal ég seigja ykkur. Sumarið er minn tími, klárlega. Eini gallinn við þetta æðislega veður er það að það er að verða alveg ólíft í vinnunni fyrir hita. Það er ekkert voðalega huggulegt að vinna í steikjandi hita og karla svitafílu, því auðvitað þá svitar fólk mun meira. En þetta fylgir víst bara:) En úr því að ég er farin að tala við vinnuna þá stend ég í smá stríði við einn samstarfsmann minn. Málið er það að gaurinn hann prumpar svo mikið á morgnanna að það er bara að gera útaf við mig. Bæði með og á hljóðs, og maðurinn er dauður að innan. Hann semsagt gerir alveg í því að kreista útúr sér gassprengjurnar til að pirra mig því ég verð alveg brjáluð í hver einasta skipti, og hann hefur mikla ánægju af því. Fynnst það eitthvað fyndið. Ég veit ekki hvað ég á að gera til að láta hann hætta þessu, ég er stundum bara alveg með æluna, í alvöru talað. Kannski er ég bara vona mikil tepra, ég veit það ekki, en fólk reynir nú yfirleitt að halda í sér og losa svona í einrúmi...eða það myndi ég allavega gera ef ég myndi einhverntímann prumpa...Annars er þessi samstarfsmaður minn ágætis skinn, en hefur þennan stóra galla.

Ég var að fatta það að ég er búin að búa hér í Álaborg í 7.mánuði. Mér fynnst ég bara alls ekki búin að vera hér svo lengi, sem þýðir vonandi að það er gaman...

Og þar sem er kominn mánuður síðan síðast þá langar mig að þá hefur ýmislegt gerst:

Mig langar að óska Steinunni og Jóni Gunnari til hamingju með litlu prinsessuna sem þau eignuðust 21. apríl síðastliðinn. Fallegra barn er sko vanfundið, hún er alveg æðisleg...Mig hlakkar sko mikið til að halda á henni þegar ég kem til Íslands:)

Mamma mín átti afmæli 6. mai síðastliðinn

Hún Sigrún mín var að útskrifast í gær frá University of Georgia með b.s. gráðu í sálfræði, og ég er alveg hrikalega stolt af henni...

Og svo ætla ég líka svona fyrirfram að óska henni Böggu minni til hamingju með afmælið, en hún á afmæli 14.mai og verður " 25.ára":)

Jæja, tilkynningaskyldan búin í bili.....Ég er að koma heim eftir aðeins 6 daga, og ég verð að viðurkenna að það er sko komið ágætis fiðrildi í mallan af tilhlökkun...

Ég er búin að kaupa mér miða á Hróaskeldu, ætla að fara með Nínu og Sigga Palla, vin hennar sem við skiptum út fyrir Jóhönnu. Það verður GEÐVEIKT...ég get ekki beðið, enda er alveg geggjaðar hljómsveitir sem verða í ár...Bara svona til dæmis þá verða Band og horses, The cemical brothers, Gnarls Barkley, José González, Kings of leon, Radiohead, Mugison, The streets og svo auðvitað margar fleiri, en þessar hlakkar mig mest til að sjá....´

Læt þetta vera lokaorðin í bili, sjáumst á Íslandi eftir 6. daga......Hlakka til
                                                  Billy:)


Jćja ţá, hér kemur ţađ....Bylgja Mjöll Helgadóttir

Það var verið að rukka mig um blogg....Maður hefði haldið að maður hefði frá einhverju að seigja eftir allan þennan tíma en svo er bara alls ekki....allavega ekkert merkilegt:)

Ég er búin að kaupa flugmiðann "heim" og til baka, þannig að ég er væntanleg í smá heimsókn þann 16.mai og fer svo aftur heim 1.júní...Ég verð að seigja að ég er orðin pínu spennt að koma aðeins heim og knúsa fjölskylduna...og fá mömmu mat, fisk og svona....ohh það verður næs:)        Ég er líka svo heppin með það að hún Jóhanna er að fara heim á sama tíma, þannig að ég fæ ferðafélaga, sem verður bara gaman því það er ekkert leiðinlegra en að ferðast ein, ég hata það.....
Og mjög sennilega fæ ég ferðafélaga út líka því hann Jósep litli bróðir( sem er orðinn stærri en ég) ætlar að koma og vera hjá mér í einhvern tíma í júní...Æjj það verður nú voðalega notalegt að hafa einhvern hjá sér í kotinu, getur orðið pínu einmannalegt svona stundum....Okkur á allavega ekkert eftir að leiðast saman, það er alveg á hreinu...það er alltaf gaman  hjá okkur tveim:)

Mig vantar smá aðstoð...Þannig er mál með vexti að þar verður staffa partý næsta fimmtudag og er búið að ákveða að elda saman. Ég á semsagt að koma með Íslenskan forrétt...ég hef ekki hugmynd um hver fjandann ég á að meika, ég er gjördamlega tóm??? Var að spá í að verða mér úti um sviðakjamma eða hákarl, en ég vil ekki vera að misbjóða fólkinu....Þannig að ALLAR humgmyndir eru vel þegnar, takk fyrir

Hummm...hvað meira?? Já, það er eitt. Vill einhver gefa mér mótorhjól? Einhver?? Núna eru allir að taka út mótorhjólin sín því það er að koma sumar og ég er að deyja því mig langar svo í líka...Ég er búin að sjá svo mikið af flottum hjólum hér að það bara ekki normal....enda eru Hells Angels bara næstum því í næsta húsi við mig....svona eiginlega. Þó að schooterinn minnn  sé alveg að skila sínu, kemur mér frá A til B, þá er það bara alls ekki það sama og að keyra um á mótorhjóli......bara alls ekki...Mig langar í ALVÖRU mótorhjól, sem kemst hraðar en 30km/klst....Þannig að ef einhverjum langar að gefa mér afmælisgjöfina mína snemma( það er nátturulega stórafmæli framundan, 25.ára), þá er það allt í lagi mín vegna:)

Já, svo ætla ég að reyna að verða dugleg aftur...Var að kaupa mér nýtt kort í ræktina. Kostar bara 200kr á mánuði, maður getur bara ekki sagt nei við svoleiðis prís.....Ég var alveg hrikalega glöð fyrir það á miðvikudaginn að vera bara kristin, ekki múslimi. Það var þarna stelpa, múslimi, sem var á fullu í ræktinni að wörka....ok, allt í  góðu með það, en greyið var ekkert í joggaranum sko, heldur var hún bara í sinni múnderingu, þ.e. mussu sem nær niður í gólf og svo auðvitað höfuðklútur, eða hvað sem þetta heitir. Guð minn góður hvað ég vorkenndi greyið stelpunni, maður sá bara hvað henni var rosalega HEITT....úff, en um leið þá dáðist ég að henni fyrir að meika þetta...Það fannst mér bara aðdáunarvert. Það hefði ábyggilega liðið yfir mig. En ef ég þyrfti að ganga í svona "galla", sem myndi gjörsamlega fela allan vöxt, þá væri ég sko ekkert að stressa mig á að vera mæta í ræktina....Ég sæi bara ekkert point í því....
´
Já og svona í lokin....Hvað er eiginlega að gerasrt á Íslandi??? Ég er bara að lesa daglega á mbl.is fréttir af alvarlegum slysum....Það er bara einhver hrina í gangi, alveg hræðilegt. Þetta er bara komið gott, okey....Ekki meira.      Ég er líka að lesa daglega um það hvað allt er að hækka og orðið dýrt heima, og mér fynnst að bara bara alveg glatað, og ekki beinlínis vera til þess að fá mann aftur heim strax...Maður nennir nú ekkert að láta vera okra á sér.......

Jæja, er þetta ekki alveg komið nóg bill í bili, ég held það...
Lifið heil, spennið beltin, takið sjónvarpið úr sambandi áður en þið farið að sofa, slökkvið á öllum kertum.......og bara í guðana bænum farið varlega....Maður tryggir ekki eftir á...

Billy biðiur að heilsa:)



Payday today..:)Bylgja Mjöll Helgadóttir

 Ég er eins og krakki að bíða eftir jólunum...það á að borga út í dag. Ég er ekkert smá spennt að sjá hvað ég fæ í laun, vona að ég verði ekki fyrir vonbrigðum. Þessi mánuður sem er að líða er búinn að vera mjög erfiður peningalega enda komu engin laun í kassan um síðustu mánaðarmót þar sem ég var atvinnulaus þá...Guð hvað ég er ánægð að þetta tímabil er búið...það hentar mér engann veginn að vera fátæk, það bara fer mér alls ekki, hehe…..

Annars en lítið að frétta eins og alltaf, bara þetta sama. Ég var í fríi um helgina og var boðið í þennan fína mat hjá henni Johönnu á föstudaginn. Það var nefnilega úrslitakvöld í X-faktor og að sjálfsögðu var horft á það og kvatt áfram sitt fólk....svo seinna um kvöldið kíktum við stelpurnar á smá tjútt á Götuna góðu...Átti líka voða huggulegann laugardag með henni Nínu sem fór svona mest megnis í að borða nammi, horfa á tv og svo bökuðum við pítsu og borðuðum meira, hehehe

Það er kominn sumartími í Danmörku þannig að núna erum við tveim tímum á undan Íslandi…og það er alveg greinilegt að sumarið er á næstu grösum, það er loksins farið að hlýna. Það er búið að vera mjög kalt og bara leiðinlegt veður síðan um páska. Ég sit núna inní stofu, með opinn gluggan og hlusta á fuglasönginn, aðallega ugluna…voðalega notó…

Og litli heimur….ég rakst á manneskju sem ég þekki í stórmarkaðnum á föstudaginn sem ég hafði ekki hugmynd um að byggi hér, ekki grænan. Ég og Lilja forum semsagt í Fotex á föstudaginn að versla í matinn, og þar sem við erum í makindum okkar að gramsa í fötunum er pikkað í mig, ég sný mér við og þar stendur Edda, kona sem var að vinna með mér í Mosfellsbakarí, mjög fyndið…og eftir smá spjall kemur í ljós að hún og Lilja eiga sameiginlega vinkonu sem býr hér í Ála líka…..ja litli heimur

Og áður en ég enda þetta bull mitt þá vil ég nota tækifærið og óska henni Beggó minni til hamingju með afmælið á morgun, 1.april, en hún verður 22.ára gömul pæjan…ég vona að þú eigir eftir að eiga góðan dag Beggó mín, ég sendi þér fullt af kossum og knúsi….

Ég ætlaði að reyna að setja inn myndir af vinnunni minni og fleira, það er ekki að takast hjá mér, jafnvel þó að ég hafi fengið einkakennslu í því hvernig á að setja þær inn....en við fórum á smá rúnt um daginn og tókum nokkrar myndir af þessu helsta í Álaborg...ég setti inn nokkrar myndir á myndasíðuna....
                                   
                                        Billy kveður:)



Páskar....Bylgja Mjöll Helgadóttir

  Ég vona að þið hafið átt ánægjulega páska. Ég átti allavega alveg fínustu páska. Ég fékk páskaegg og páska mat og ef þetta tvennt er til staðar þá eru páskar hjá mér. Ég er búin að slaka vel á í þessu fríi mínu. Ég fór reyndar að vinna á laugardaginn því einn bakarinn var veikur, en fyrir utan það er ég búin að vera í fríi síðan á fimmtudag. Það er búið að vera frekar leiðinlegt veður undanfarið, bara snjókoma og kallt... og ég sem hélt að það væri að koma sumar, greinilega ekki alveg strax allavega. Það var svo kalt og leiðinlegt veður á laugardagsnóttina þegar ég þurfti að vinna að ég gat ekki einusinni farið á schooternum í vinnuna því hann var gjörsamlega frosinn í gegn...

En á miðvikudaginn var alveg geggjað veður og ég og Lilja skelltum okkur í hressilega kraftgöngu í skóginum og týndum nokkrar páskagreinar í leiðinni. Ég elska þennan skóg, það eru alveg æðislegar gönguleiðir þarna og mjög fallegt og svo eru allstaðar bekkir til að tylla sér á sem kemur sér hrikalega vel, sérstaklega þegar maður er búin að hálf sprengja sig á að rogast upp einhverja hæðina...

                               

Á laugardaginn var mér boðið í afmæli hjá Óliver og Katrínu, en það eru börnin þeirra Lilju og Sigga, og alveg klárlega mestu dúllur í danaveldi…..Alveg rosa fín veisla hjá þeim, enda svo heppin að hafa einkabakara og konditor á heimilinu til að sjá um kræsingarnar sem voru ekki af verri endanum….Svo seinna um kvöldið elduðum við stelpurnar saman smá hátíðarmat sem hljómaði uppá ostafylltar kjúklingabringur, hvítlaukskartöflur, steikta sveppi og grænmeti….ummm þetta var sko alveg hrikalega gott hjá okkur, við erum alveg snilldar kokkar skal ég seigja ykkur…..þeir verða ekki sviknir í eldhúsinu þeir heppnu menn sem næla í okkur í framtíðinni, hehehe

Á sunnudaginn var mér svo boðið í alveg æðislega góðan mat hjá Sigga og Lilju, svona ekta páskamat....hann alveg bráðnaði uppí manni. Svo var setið og spjallað langt fram á kvöld, og seinna um kvöldið brunaði ég svo niður í bæ til stelpnanna og við kíktum aðeins á tjúttið. Það var nú frekar rólegt í djamminu því það voru bara nokkrir staðir opnir, en við náðum að taka smá snúnig og drekka einn kokteil…..

Í dag ætla ég svo bara að hafa það huggulegt og vera sófaklessa því svo er vinna á morgun og sælan búin í bili….vinna í 4 daga og svo komin aftur í þriggja daga frí, ekki slæmt….
                                                                                       Billy kveður, yfir og út.....



Bob Dylan!!!!Bylgja Mjöll Helgadóttir

Hvern langar að koma með mér á Bob Dylan tónleika??? Ég rakst á það að Bob Dylan verður með tónleika í Eigilshöll 26.mai næstkomandi og þar sem ég verð stödd á landinu á þeim tíma langar mig alveg hrikalega að fara enda búin að dýrka hann Bobby D. í langann tíma. Býður sig einhver fram sem fylgdar manneskja?? Einhver?? Allavega þá byrjar miðasalan 28. mars þannig að þið hafið nokkra daga til að ákveða ykkurBrosandi 
Ég vonast eftir commentum/sjálfboðaliðuum þetta verkefni........Svona nú people, það er ekki á hverjum deigi sem þetta frábæra tilboð býðst
                                                             
                                                                     Billy sem elskar Bob:)

Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Klukkan

Undirsíđukubbur

Flokkar

Atburđarteljari